ekkert til sem heitir ókeypis tannlækningar !

Við karlmennirnir í Landsliðinu furðum okkur á þessu liði. Auðvitað á allt bara að vera ókeypis - ókeypis í sund og strætó, ókeypis læknisþjónusta, ókeypis matur á leikskólum etc etc.

Á barnafólk á Íslandi að verða einhver forréttindahópur ? Það er val fólks að eignast börn og þar með á það að vera tilbúið að sjá fyrir þeim. Auk þessa er ekkert til sem heitir ókeypis tannlækningar.
Tvennt þarf nefnilega að hafa í huga þessu tengt:

1. Það er ekki til neitt sem heitir ókeypis - í staðinn eru skattar hækkaðir og enginn hefur hugmynd um hvað þetta er að kosta í raun og veru.
2. Þeir sem ekki eru að nýta þessa þjónustu ( td aldraðir, fólk sem ekki getur eignast börn etc), borgar undir þá sem þetta nýta sér.

Hættiði þessu rugli.....


mbl.is 15 þúsund vilja ókeypis tannlækningar fyrir börn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

En hvað peningar verða svo notaðir til að borga þinn sjúkrakostnað  þegar þú ert hættur að vinna ?

Kannski skattar þessara barna sem barnafólkið sér um og kostar að koma til manns...... eða ætti kannski að láta þá skattpeninga ganga til "forréttindahópsins" sem kostaði uppeldið og hinir geta séð um sig sjálfir ...

Væri kannsi hugmynd að skattleggja barnlausa sérstaklega til að eiga fyrir sjúkra- og samfélagskostnaði þeirra í ellinni

no free lunch (IP-tala skráð) 21.4.2009 kl. 10:38

2 identicon

Ég ætla að gera þér þann greiða að benda þér á mikla hugsanavillu í þessum ágæta pósti þínum.

Þú segir að það sé val fólks að eignast börn og að barnafólk eigi ekki að vera forréttindahópur. Það er útaf fyrir sig rétt að það er val fólks að eignast börn (oftast amk.

En............það er líka þjóðhagslega hagkvæmt að hér endurnýjist íbúarnir og fjölgi helst. Að hér alist upp nýjir skattborgarar sem taki við af þeim gömlu sem......jú....deyja sjáðu.

Þess vegna reyna vestrænar þjóðir að ýta undir barneignir.

Svo berum við sem samfélag ábyrgð á okkar yngstu borgurum. Ef foreldrarnir hafa ekki efni, eða rænu, á að kaupa heilbrigðisþjónustu, vil ég amk búa í samfélagi sem sér til þess að börnin líði ekki fyrir það.

Júlíus (IP-tala skráð) 21.4.2009 kl. 11:45

3 identicon

Úfffffff..... hvar á maður að byrja ? Þið eigið greinilega ekki börn... Börn eru saklaus og eiga ekki að þurfa að vera með skemmdar tennur af því að foreldrarnir hafa ekki efni á tannviðgerðum. Sum börn fá ekkert að borða í skólanum og eru svöng allan daginn. Þetta snýst engan veginn um foreldrana hvort tannlæknaþjónusta eða skólamatur eigi að vera ókeypis, þetta snýst um börn þessa lands, sem koma til með að stjórna landinu síðar meir- með engar tennur ef þið fengjuð að ráða.

Inga (IP-tala skráð) 28.4.2009 kl. 17:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband