27.10.2008 | 09:13
Jón Baldvin Hannibalsson
Listamenn landsins, eldri borgarar, athafnamenn og uppgjafa stjórnmálamenn hafa nú keppst undanfarið að blása til mótmæla hér og þar um borgina og yfirleitt er bara verið að mótmæla einhverju. Vissum minnihlutahópum finnst rosa gaman að mæta í svona mótmæli og labba með og elta forystuhænuna og gaula með, þótt fólk kunni nú yfirleitt ekki frasana sem hrópa skal á torgum úti.
Einn af þessum mönnum sem hefur farið frammi í þessum mótmælum er Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrum stjórnmálamaður sem þjóðfélagið hafnaði fyrir mörgum mörgum árum síðan. Við karlmennin í Landsliðinu höfum ályktað um málið.
Það er alltaf sorglegt þegar gamlir og bitrir stjórnmálamenn koma úr helli sínum á efri árum og rífa kjaft, sérstaklega þegar innistæðan er engin. Ef við förum yfir feril Jóns Baldvins þá minnumst við þess að Jón lét skattborgara landsins borga áfengi í afmælisveislu í fjölskyldu Jóns. Hann hefur ekki minnst á það í mótmælaaðgerðum sínum. Jón Baldvin var forystusauður Alþýðuflokksins gamla og góða sem hafði skýra og góða stefnu. Jón tók við flokknum í blóma - en síðasta skoðanakönnun sem gerð var áður en Alþýðuflokkur fór inn í Samfylkingu sýndi 5% fylgi Alþýðuflokks - sem var hrap frá körfylgi. Jón hafði silgt skútuni upp í sandinn og var hún strönduð. Jón Baldvin skemmdi þennan flokk með eigin höndum og gerði hann að einum minnsta og áhrifaminnsta stjórnmálaflokki landsins. Jón Baldvin hefur lítið rætt þetta við mannskapinn í mótmælunum undanfarið.
Jón Baldvin gaf á sínum tíma út ævisögu sína. Átti hún að koma út í tveimur, ef ekki þremur bindum. Fyrsta bindið kom út einhverntímann á árinu 2000 og var um bráðskemmtilega lesningu að ræða. Svo, ótúrlegt en satt, lenti Jón í deilum við ævisagnaritarann og hin tvö bindin eiga enn eftir að koma út. Hvernig er hægt að lenda í deilum við þann sem ritar ævisöguna sína? Þetta segir afar mikið um Jón Baldvin Hannibaldsson.
Það er vitað mál að Jón Baldvin er enn svektur eftir að Davíð henti honum úr ríkisstjórn á sínum tíma enda ekki annað hægt þar sem fylgið hans var á við styrkleika Egils Pilsner. En að hann skuli enn vera gráti næst yfir þessu er stórmerkilegt. Þetta er auðvitað fyrst og fremst sorglegt fyrir Jón Baldvin og gerir hann að grátlegu gamalmenni.
Við karlmennin í Landsliðinu hvetjum Jón Baldvin til að taka ellinni með ró, safna frímerkjum, fara í sumarbústað með barnabörnunum, sund eða eitthvað álíka, svona eins og gamlt fólk gerir. Ekki vera að skemma ferlinn, sem var ágætur til að byrja með, með svona elliglöpum.
Að lokum viljum við hvetja þetta fólk sem virðist hafa lítið annað að gera en að mótmæla bara einhverju til að taka þátt í uppbyggingarstarfinu í stað þess að vera að leita að blórabögglum. Það mun skynsamt fólk taka þá vinnu að sér síðar meir.
|
Þögn ráðamanna mótmælt |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |



johannst
hvala





Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.