29.4.2009 | 21:03
Þráinn Bertelsson - siðspilltur maður á þingi
Einhverra hluta vegna fékk blessuð Borgarahreyfingin 4 menn kjörna á þing um síðastliðna helgi. Einn af þeim er Þráinn Bertelsson. Þráinn fer mikinn í Fréttablaðinu í dag með undarlegri grein svo ekki sé meira sagt.
Þráinn hefur verið iðinn við kolann undanfarin ár og einungis séð svartar hliðar á þjóðfélaginu og svo virðist sem svartsýnið hafi yfirtekið þennan snjalla leikstjóra. Nú fær Þráinn tækifæri til að breyta þessu enda kominn á þing.
Það sem er undarlegt í þessu öllu saman er að Þráinn þiggur styrk frá ríkinu og hefur verið á spena íslenskra skattgreiðanda undanfarin ár. Þeir kalla þetta víst heiðurslaun listamanna eða eitthvað álíka vitlaust. Aðspurður segist Þráinn ekki ætla að afþakka styrkinn nú þegar hann fær að fá þingfarakaupið!!! Og svo vogar þessi maður sér að flokka sig sem einhvern byltingamann sem barðist fyrir réttlátara samfélagi. Þvílík della. Þarna er spillingin í öllu sínu veldi. Hér koma nokkur skilaboð til Þráins Bertelssonar og annarra sem þiggja ölmusu frá ríkinu.
a) Heiðurslaun Listmanna eru tímaskekkja og á tímum niðurskurðar og sparnaðar á auðvitað að úrtýma svona tilgangslausum peningaíkveikjum.
b) Þú átt ekki skilið að fá Heiðurslaun Listamanna Þráinn. Ekki frekar en aðrir. Þú hefur ekkert verðskuldað til að vera á spena íslenskra ríkisborgara svo árum skiptir.
c) Rétt er það að þú hefur ekki sótt formlega um að fá Heiðurslaun listamanna. Framsóknarflokkurinn sá um þá vinnu fyrir þig og tók af þér ómakið og þakkaði þér þannig fyrir fjölmiðlafulltrúastarfið sem þú sinntir fyrir Halldór Ásgrímsson.
d) Þú hefur skrifað dásamleg kvikmyndahandrit sem munu lifa næstu kynslóðir. Þrátt fyrir það átt þú ekki skilið mánaðarlegar greiðslur frá íslenskum skattborgurum um aldur og ævi. Þetta er svipað og ef Íslandsmeistarinn í júdó fengi mánaðarlegur greiðslur frá samborgurum sínum ævilangt eftir eitt gott ippon.
Við Landsliðsmennirnir hvetjum þig til að afþakka þessa ölmusu frá íslenskum skattgreiðendum og láta peninginn þess í stað renna til baka til ríkisins og þá hægt að nota hann á skynsamlegan hátt, en ekki í dellu. Gerir þú þetta verður samviska þín líka betri og þú getur sinnt þingstörfum án þess að vera með það á bakinu að vera á spena íslenskra skattgreiðanda.
Landsliðið ehf....
Gjaldþrota - en sexy.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.4.2009 | 07:35
Loksins gerir forsetinn eitthvað af viti
Það var mikið að þessi blessaði forseti ykkar, sjálfur Bessastaðabóndinn, gerir eitthvað af viti.
Eins og má sjá á tenglinum hér að neðan var hætt við að sæma einhvern sendiherra Bandaríkjanna heiðurorðu. Ekki vitum við - né skiljum - hvers vegna það eigi að sæma þessa kellingu frá Bandaríkjunum heiðursorðu. Gaman væri að sjá listað upp þau afrek sem hún hefur unnið til þess að eiga skilið að fá þessa orðu. Það er væntanlega fátæklegur listi.
Átti kanski að sæma hana orðu vegna mikillar aðstoðar frá Bandaríkjamönnum þegar við Íslendingar lentum í brekkunni í október síðastliðnum?
Komum þessari kellingu til síns heima og það strax - án þess að næla einhverju merki í brjóstið á henni. Hún á það svo sannarlega ekki skilið.
http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item262577/
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.4.2009 | 09:55
ekkert til sem heitir ókeypis tannlækningar !
Við karlmennirnir í Landsliðinu furðum okkur á þessu liði. Auðvitað á allt bara að vera ókeypis - ókeypis í sund og strætó, ókeypis læknisþjónusta, ókeypis matur á leikskólum etc etc.
Á barnafólk á Íslandi að verða einhver forréttindahópur ? Það er val fólks að eignast börn og þar með á það að vera tilbúið að sjá fyrir þeim. Auk þessa er ekkert til sem heitir ókeypis tannlækningar.
Tvennt þarf nefnilega að hafa í huga þessu tengt:
1. Það er ekki til neitt sem heitir ókeypis - í staðinn eru skattar hækkaðir og enginn hefur hugmynd um hvað þetta er að kosta í raun og veru.
2. Þeir sem ekki eru að nýta þessa þjónustu ( td aldraðir, fólk sem ekki getur eignast börn etc), borgar undir þá sem þetta nýta sér.
Hættiði þessu rugli.....
|
15 þúsund vilja ókeypis tannlækningar fyrir börn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
21.4.2009 | 08:23
Nú gleðst jafnréttisiðnaðurinn
Hvað erum við karlmennirnir í Landsliðinu búnir að lesa margar svona fréttatilkynningar frá þrýstihópum í jafnréttisiðnaðinum ?
Zontakonur, Kvenréttindafélag Íslands, Feministafélag Íslands etc etc. Eru þetta ekki sömu konurnar upp til hópa ? Allt skipað jafnréttis og kynjafræðingum úr Háskóla Íslands. Öllu þessu fólki verður eflaust sköffuð vinna í nýrri vinstri stjórn, þarf ekki jafnréttissjónarmið, kynjaða hagstjórn etc í þetta land nú þegar við erum á hausnum ?
Að banna fólki að kaupa það sem má selja er ekkert annað en heimskuleg lagaflækja.
|
Fagna vændislögum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.4.2009 | 22:25
Útkallið
Í gær, laugardag, var útkall hjá Landsliðinu. Útkall merkir að Landsliðsmenn eiga að mæta á ákveðinn stað, á ákveðnum tíma. Skýrt var kveðið á í Útkallinu að oft væri þörf en nú væri nauðsyn.
Eins og við var að búast mættu sumir ekki til leiks og létu ekki ná í sig en þar má helst nefna Pumpuna og Prestinn en þeir pössuðu sig á því að svara ekki símann heldur. Sumir grétu og komu með afsakanir eins og "Ég er að fara út á miðvikudaginn", "Ég er að fara á árshátíð", "amma mín er að fermast" og annað eins bull. Aðrir svöruðu ekki kallinu og létu sér fátt um mikilvægt neyðarkall finnast.
4 karlmenn létu sjá sig og brugðust við neyðarkallinu en þar má nefna Hóruna, Keisarann, Frændann og Þreytta. Leystu þessir vösku sveinar Neyðarkallið af stakri snilld eins og við var að búast.
Þeir sem ekki mættu eru minntir á greiðslu sektar, kr. 10.000.- og skal hún greiðast strax, eigi síðar en um næstu mánaðarmót en upphæðinni ætla fjórmenningarnir að eyða á Holtinu nú í maí.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.4.2009 | 22:06
Pólitísk rétthugsun bullukolla
Þarna er þá skjaldborgin. Þær konur sem eygðu von um að geta hætt í skúringunum og farið að selja sig eða dilla sér verða nú að finna sér annan farveg í lífinu.
Hvernig er komið fyrir landinu okkar þegar meirihluti Alþingis er upptekinn við að setja lög um súlustaði og bannar kaup á vændi, undir því yfirskini að hér sé verið að berjast gegn "klámvæðingu og mansali". Þess ma´geta að mansal er bannað á Íslandi og því er sá málflutningur tóm steypa.
Nú hefur þessi auma vinstri stjórn sem komst til valda með ofbeldi og skrílslátum náð hverju öðru feministamálinu inná Alþingi. Hugsa sér hvað gerist næstu 4 árin ef þetta lið fær völdin í landinu.
Hvenær ætla VG að banna krabbamein og offitu ? Hverfa ekki öll vandamálin í þjóðfélaginu þegar búið er að banna þau ?
|
Kaup á vændi bönnuð |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.4.2009 | 20:52
Sendiráð Úganda með hvítt tjald á þjóðhátíð ?
Við karlmennirnir í landsliðinu fögnum þessu enda þó við séum með ólíkan bakgrunn hvað varðar knattspyrnulið á fastalandinu eiga Eyjamenn alltaf okkar stuðning vísan.
Ofboðslegir skemmtikraftar á velli - og hvergi er skemmtilegra að fara að sjá fótbolta en á Hásteinsvelli.
Nú bíðum við bara spenntir eftir að heimsækja þá Úgandamenn í hvíta tjaldið sitt á þjóðhátíð - hvað ætli verði í boði þar ?
|
Þriðji Úgandamaðurinn til ÍBV |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.4.2009 | 11:19
Guði sé lof
Þarna er sko góður drengur að fá gott embætti. Landsliðið fagnar þessum tímamótum og vonar að við sjáum hann oftar í hempunni og síður oftar í þessum leiðindafótboltaauglýsingum.
Til hamingju breiðhyltingar - og til hamingju Ísland.
svo skemmir útlitið heldur ekki fyrir pilti
|
Valinn prestur í Seljaprestakalli |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.3.2009 | 16:17
Vitleysan heldur áfram
Jú góðir hálsar.....vitleysan heldur áfram og er nú bara aukin eftir að kommarnir komust til valda.
Nú á að fara að kafa enn dýpra í vasa skattborgaranna til að halda uppi þessum ójöfnuði sem listamannalaunin eru. Skil ekki af hverju menn kalla svona stykri ekki réttum nöfnum - í stað þess að setja nöfnín í spariföt.
Hvað er Hallgrímur Helgason að þiggja annað en ölmusu frá ríkinu? Af hverju á hann að fá listamannalun en ekki sá sem setur lim á ennið á sér eins og gert var í Kastljósi á sínum tíma og viðburðurinn kallaður listrænn "gjörningur". En nú er Hallgrímur bara í Norge - í boði íslensku þjóðarinnar.
En þetta er hættan við að hafa vinstri græna við stjórnvölinn. Ójöfnuðurinn og vitleysan er algjör - og Guð hjálpi okkur ef þetta fólk kemst áfram til valda.
Við Landsliðsmennirnir skorum á stjórnvöld að fella þessa ölmusu, með lögum, úr gildi og láta peningana renna í annað skynsamlegra og mikilvægara. Ekki veitir af á tímum sem þessu. Listamannalaun eru 2007.
|
Leggur til breytingar á listamannalaunum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.2.2009 | 21:27
Hurrahh fyrir Ragnari Thorarensen
Loksins talar einhver af viti - en því miður ætlar hann ekki að gefa kost á sér inn á hið háa Alþingi.
Hvað er málið með þessa Sovésku kynjakvóta? Til hvers í and..... er verið að miðstýra hvernig eigi að stilla upp á listum? Gengur lýðræðið ekki út að á fólk hafi val? Hafi val um það hvort að það velji karl eða kellingu í fyrsta sæti á lista? Eru það ekki lýðræðislegri vinnubrögð en að banna tveimur karlmönnum að berjast um fyrsta sætið við þann þriðja því það á að hleypa kellingu að? Og það á eftir að finna konuna því engin hefur boðið sig fram.
Ísland er að verða skammarlegt Sovéskt ríki þar sem kerfið velur fyrir borgarana. Kynjakvótar eru það vitlausasta sem hefur komið frá vinstri mönnum síðan þeir veltu því fyrir sér að vera með netlöggu til að vakta samborgara sína.
Ég held að þessar sömu raddir ættu að krefjast þess að helmingur áhafna á skipaflota okkar Íslendinga eigi að vera konur. Út á sjó með ykkur konur - og farið að afla peninga í þjóðarbúið.
|
Dregur framboð sitt til baka vegna kynjakvóta |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)




johannst
hvala




